Klukkan
19.07.2007 02:05:15 / Tony

das ist gut jaaa, ich habe keine titill in meinem Kopf.

Hvenær veit maður að maður er ekki góður bloggari?

* Þegar gestunum fækkar eftir því sem færslunum fjölgar.
* Þegar maður tekur sér nokkra mánaða "pásu"  en hefur SAMT ekkert að segja í bloggunum sínum.
* Þegar maður er farinn að nota fleiri en 3 broskalla í bloggfærslunni sinni.
* Þegar  manni er borgað fyrir að hætta að blogga.
* Þegar maður stífnar allur upp þegar maður er sestur niður við tölvuna, tilbúinn að skrifa eitthvað.
* Og þegar maður hefur EITTHVAÐ af eftirfarandi á bloggsíðunni sinni (sem er á ansi mörgum bloggsíðum á vefnum):


1. "Ég elska þig" á ýmsum tungumálum.

2. "Ekki ýta á þetta" og upp koma tugir kassa sem segja "ég sagði þér það" o.s.frv. þegar maður ýtir á það. 

3.  Fréttir af fræga fólkinu. Sumir eru jafnvel með heilar síður tilenkaðar einmitt því. Get a life maaaan!

4. "Dvergaklám", og síðan þegar maður ýtir á það stendur "ERTU PEEEERRIIIII?" eða "hvað er 2+2" og maður á að skrolla niður til að lesa "ERTU HÁÁÁÁÁÁLFVIIIITIIIIII?"

5. "20 staðreyndir um stráka og stelpur". Nenni ekki að útskýra það.

 

En já, það sem er að frétta af mér er að ég er kominn í 4 daga helgi. Næsti vinnudagur á mánudaginn og síðan er rafting ferð í skagafjörðinn með vaktinni minni á miðvikudeginum.
iPodinn minn er líka ónýtur, ekki hægt að lesa skjáinn vegna sprungna, og eina lagið sem ég get hlustað á er walking on clouds með DJ Tiësto því það var lagið sem ég var að hlusta seinast á á iPodnum, og ég kann ekki að velja önnur lög blindandi.

 Síðan var maður að spila gegn Akureyri í utandeildinni seinasta fimmtudag. Akureyri var fyrir umferðina í efsta sæti og taplaust, en mitt lið, Greifarnir FC unnu þessa handboltahomos 4:3 og skoraði ég mark nr 2. Við komumst í 3:0 í fyrri hálfleik, þeir jöfnuðu (lélegt, ég veit) en síðan skoraði Arnar kallinn mark frá miðju á seinustu sekúndunni! Aldeilis dramatíki. Næsti leikur svo á morgun (fimmtudag) gegn Timburmönnum, verður ruuuuuuusalegt!

 Spurning líka hvort maður leggi puttana á hilluna, því að staðreyndir 1,2 og 5 eiga við mig?
Jæja, þjóðin ræður. Veriði sæl að sinni.

 

E.S - Kommentið, sama þó þið séuð að koma í fyrsta skipti eða ekki :O 


» 15 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 02:09:39 / Tony

Omg skiluru..

Það leiðinlegasta við bloggfærlur er byrjunin á þeim. Ég veit aldrei hvernig á að byrja!

En ætli maður hendi ekki inn einu hundleiðinlegu bloggi fyrir ykkur sem þið getið dáðst að.

Hmmmm, hvað gerir maður nú þegar maður bloggar? JÁ! maður segir öllum hvað er búið að gerast undanfarið.
Ég er byrjaður í nýrri vinnu, á Bautanum. Þess má til gamans geta að mér líkar mjög vel við mig þar, allt annað líf en bakaríið í fyrrasumar. Síðan fór mín vakt í útileigu fyrir viku síðan sem er alveg gott og blessað, nema að í endann fékk ég frissbí disk í augað og fékk glóðurauga! Og já, ég fékk hann TVISVAR í sama augað. Ég er frekar stoltur af mér fyrir þann árangur...nei ég er ekki þroskaheftur.

 

Uuuuuuu, hvað meira? .. hmmmm, ég gleymi alltaf öllu sem ég hef verið að gera nema það sé eitthvað þvílíkt eftirminnilegt (en sumt set ég samt ekki á netið). Kannski það þýði að maður verði að blogga oftar? Lesist sem: "Ég hef engan áhuga á að blogga fyrir ykkur, bara vekja smá vonarneista í sálartetrinu ykkar".

 
En kannski maður taki smá gagnrýni í lokin á þessu yndislega bloggi.
Einhver séð þáttinn vörutorg? Það er magnað að allar vörurnar skuli vera "frábæra, stórkostlegar, ótrúlegar" og allt þetta og að maður verði að tryggja sér þær ....... "STRAX í dag!". Er eitthvað að manninum? Hann breytir aldrei um svipbrigði heldur, sama hvað hann er að tala um...Ég er að horfa á vörutorg einmitt núna og helvíti er kallinn tanaður, auglýsandi Tinna eins og sannur hershöfðingi. Minnir mig á að maður verður að skella sér í sund ef það verður gott veður ... STRAX í dag!

 Hmmmmm, segjum þetta gott. Til að gera langt blogg stutt þá er þetta svona:



Þetta er óvinurinn, við hötum hann.

 

L8er earthlings. 

E.S. - Er það bara ég, eða er Snæbjörn eitthvað rítardid?


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 23:42:59 / Tony

Hvað er í gangi?

Ég neyðist eiginlega bara til að blogga. Ég kem hérna á síðuna mína í mesta sakleysi, eins og maður gerir nú stundum. Kíkir heim til sín við og við þegar maður saknar heimahaganna, og hvað sé ég? Jú, 42 búnir að koma í heimsókn í dag þegar ég byrja að skrifa þetta!

Ég er ekki búinn að blogga síðan í september, og síðan hefur aldrei fengið betri aðsókn. Eitthvað lyktar fiskalega hérna... er það afþví að bloggin mín eru leiðinlegri en non-bloggin mín? spurning.


En jæja, fyrst ég er nú byrjaður á þessu þá ætla ég að tuða aðeins.


Söngkeppni framhaldsskóla: Ég fór á hana, til hamingju VMA-ingar og Eyþór. Hann er með rosalega rödd drengurinn. Þetta var ágætis skemmtun og svona, en hvaða þroskaheftu fífl voru alltaf að henda glow-sticks-unum útum allan sal alltaf? Sem betur fer lenti ekkert í hausnum á mér, en ég sá þetta lenda í hausnum á mörgum þarna, og stundum voru fleiri tugir í umferð í einu! ');"> <img src=">
Ég veit allavega að ég hefði verið alveg svakalega pirraður, svo ekki sé meira sagt hefði ég fengið eitt stykki í hausinn.

Ball eftir söngkeppnin: Olli mér vonbrigðum, Palli alltaf með sömu lögin, alltaf með sömu línurnar og allt eins!
"Til hvers að spila lög eftir sjálfan mig, ÞEGAR ÉG GET BARA SUNGIÐ ÞAU SJÁLFUUUUUUR!?!?!?!?".

Já, leiðinlegt kvöld. En það styttist í sumarið, á fimmtudaginn nánar tiltekið! Djööööööööööööööööööööll ætlar marrrrrrrr að vera fullur á morgun og taka á móti sumrinu vel hífaður hehehe.... marrrrrr.

Segi þetta gott núna, kannski maður snúi aftur í bloggið? Efast, efast .... þið 41 sem heimsækið síðuna megið alveg gefa ykkur fram og kommenta eða skrifa í gestabókina.

L8er ');"> <img src=">

');"> Fyndið.


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 15:55:46 / Tony

skurgun

Já hæææ.

Langt liðið frá seinasta bloggi (finnst eins og ég byrji öll blogg svona). En þá verður bara að bæta úr því, ekki satt? mmmyes.

Svo maður byrji bloggið á einhverju þá vil ég minnast á að ég er byrjaður í ökutímum, búinn að fara í tvo slíka núna og segir ökukennarinn minn, hann Ingvar, sem ég btw mæli með fyrir þá sem skildu rekast á þetta blogg og eru að velta fyrir sér hvern skyldi velja, að ég sé með "góðan kúplingsfót" 8) sem ég býst við að sé jákvætt, næsti tími á morgun og verður hann tvöfaldur og mun ég fara út í sveit!!! zomg... o_O lol híhí

Fyrir akkúrat viku varð ég þess heiðurs aðnjótandi að sjá einhverja ógeðslegustu menn landsins, eða doktor herra og herra myndarlegan. Fór semsagt í sjallann og byrjaði á að hlamma mér niður í sófann og stuttu síðar komu þeir félagar og sátust í sófann við hliðina. Viiiiiiirkilega suddalegir gaurar ... one hit wonders líka, JÁ, ég sagði það og þið getið ekkert gert! har har
Annars var nú bara helvíti gaman þarna, og DJ-inn sem hitaði upp fyrir stjörnur kvöldsins stóð sig alveg frábærlega, en sömu sögu er ekki hægt að segja um hann Óla Palla sem hélt upp "stuðinu" á busaballi MA. Kórónaði síðan alveg frábæra frammistöðu þegar hann byrjaði að spila íslenskja þjóðsönginn undir lokin.

Ætla núna ekki að blogga um það sem ég hafði hugsað mér að blogga um (enda mjög ómerkilegt). Síðan verður maður að fara að herða sig í þessu blogg-dæmi ... tvö seinustu blogg hafa verið leiðinleg, ætli maður verði ekki bara að stökkva í tölvuna þegar manni dettur eitthvað í hug til að blogga um áður en maður gleymir því, o well.

Segi þetta gott núna, enda þetta á ágætis myndbandi af ansi hörðum gaurum sem að eflaust allir hafa gaman af.  *kommentið*

http://www.dumpalink.com/media/1158743046/Ultra_Violence_

Lag dagsins: Mylo - Ottos Journy

Og já, ætla ekki annars allir að joina nýjasta félag MA ... ástj.ma.is?


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 01:35:33 / Tony

Why hello there.

Já komiði sæl og blessuð (smá Jón Ársæls fílingur)

Núna eru nákvæmlega átta dagar síðan ég lauk vinnu í kristjáns bakarí, og ég er ekki frá því að ég sakni staðarins! Ekki beint það sem ég bjóst við þegar ég var að pússa plöturnar eða pakka brauðinu, en þannig er þetta bara. Ahh, allar góðu minningarnar. T.d. þegar ég klúðraði heilu kari af rúgbrauði og það þurfti að henda því öllu, þegar ég fyllti heilhveitistunnuna af spelthveiti hohoho ahhh góðir tímar, þegar ég kom heim með stútfull eyru af hveiti og þegar ég var kvaddur með kaldri vatnsgusu á köldum degi. Ahh, ég mun hugsa aftur til þessara tíma með broooosi á vööör...

En jæja, seinasta alvöru bloggið mitt kom 19 júní síðastliðinn, and boy!, margt hefur gerst síðan þá haaaaaa! Nenni nú ómögulega að telja það allt upp samt.

Skólinn byrjar eftir viku, og ég er orðinn nett spenntur! Bekkurinn minn, 2-B verður vonandi góður en stundataflan er aftur á móti ömurleg. Komon, þrisvar til kl 4 og í 40 tímum þessa 5 daga! w00t?

Það sem hefur verið hvað mest í fjölmiðlum er tvennt, Magni og íslenska landsliðið í fótbolta. Ég hef þetta stutt, nenni ekki að koma með ítarlega skoðun á þessu á þessum tíma en svona er þetta:

Magni = Magnaður, tók creep vel og er bestur af þeim sem eftir eru.
Íslenska landsliðið = Crap, danska langtum betra ... áfram Danir!

Jæja, nenni ekki að koma með meira. Skulum sjá hvort ég nenni þessu eitthvað ... efast samt um það.

Lag bloggsins er auðvitað back of your car með Ryan Star, gaurnum í Rock Star (sem reyndar er dottinn út). Gjörsamlega með þetta á heilanum núna.


The image “http://www.staticnoise.net/photos/reneeportfoliophotos/ryanstar.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Sætur strákurinn. Jæja góða nótt krútt. Drullist til að kommenta!

The image “http://www.bouviers.net/funny/wholetthedogsout.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Hér er síðan kona sem er með tvö hunda tattoo á brjóstunum á sér fyrir áhugasama.

» 14 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 20:30:25 / Tony

lol.is

Ég nenni þessu eeeeeekki.

Allavega hlé til byrjun skólans.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 22:42:50 / Tony

Kannanir, kannanir, allir elska kannanir.




» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 21:48:40 / Tony

Vinnan mín...

Vinnan mín er svo leiðinleg, að skemmtilegasta verkið sem maður gerir þarna er að pússa plötur með því sem ég kalla plötupússunarvél.

Vinnan mín er svo leiðinleg, að til að gleyma hversu leiðinleg hún er byrja allir að blístra einhver leiðinleg lög og vinnustaðurinn verður allt í einu að einhverju farfuglaheimili.

Vinnan mín er svo leiðinleg, að maður þarf að vakna "ferskur" kl. 5, vitandi að það eina sem bíður manns er 9 og hálfs tíma vinna við samlokugerð, plötupússun, rúgbrauðsgerð og setja-brauð-á-færiband gerð.

Vinnan mín er svo leiðinleg, að þeir ætla að halda mér í sirka 60 daga af plötupússun til viðbótar, eða semsagt alveg þangað til að skólinn byrjar aftur.

Vinnan mín er svo leiðinleg, að alltaf þegar maður er kominn í skemmtilegt verk með skemmtilegu fólki er maður strax sendur annað í leiðinlegra verkefni, þetta er gert til þess að brjóta okkur niður.*

Vinnan mín er svo leiðinleg, að ég fæ ekki jafn mikil laun og sá sem vinnur í kirkjugarðinum, þar sem pásur eru svona 30% vinnutímans og eina sem þeir gera er að slá.

Vinnan mín er svo leiðinleg, að ég þarf að lifa við það að þetta verður "sólarströndin" mín í ár, á meðan að aðrir liggja í sólinni á Spáni eða öðrum eins hitabeltislöndum. Og já, þessi sólarströnd mín samanstendur ekki af sól, hita, strandarrápi, surfing í sjónum eða pina coladas í skugganum ... heldur hveiti, þungu andrúmslofti, eggjum, rúgbrauði og bakverkjum.

Jæja, nóg af bögg-punktum í kvöld.
Það eru þó ýmsir jákvæðir hlutir við þessa vinnu, en þetta blogg er ekki gert til að tala um þá! (urr)

17. júní var um helgina. Þessi þjóðhátíðardagur var eins og hver annar dagur hér á Akureyrinni, semsagt áfengi, slagsmál og Gunni & Felix. Takk strákar fyrir frábæra skemmtun! ...
Aðal málið samt um helgina var partý í boði Páls Óskars í KA-heimilinu, ég veit nú svosem ekkert hvað ég á að segja um það annað en ....... yeeeeeeeeaaaahh.

*Ég meina þetta ekkert dúllurnar mínar, en þúúúúúúúúúst ég er bara ógó pirró! :'(  .... og já, Snorriiiii.


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 13:51:53 / Tony

Happy happy joy joy.

Ég bloggaði heilan andskotann í fyrradag en það eyddist út ... YUMMYYYY...
Talandi um andskotann, hann átti víst að koma á jörðina í gær (06-06-06 = 666) en síðan kom annað á daginn, einhverjir Kínverjar í Malasíu giftu sig m.a.s. í gær!

En jæja, nóg komið af giftingum Kínverja. Skólinn er (næstum) búinn, en öll próf eru búin fyrir utan eitt náttúrufræði próf sem ég á eftir. Ég fékk 7 í STÆ og fæ því að taka annan bekk, því er eintóm hamingja heima hjá mér. Ég sendi líka hamingjuóskir til Birnu, Bjarna, Eikar, Jón Svavars, Söru og (vonandi) allra hinna sem náðu eða munu ná.

Tveir dagar í HM, en þegar ég byrjaði að blogga voru 1982 búnir að skoða síðuna, en það árið unnu Argentínu menn Hollendinga í úrslitaleiknum 3-1 eftir framlengingu, ætli það sama verði á teningnum 9. júli? óóóó spennan er óbærileg!

Já og umm ... greiðslukortið mitt rann út í þessum mánuði. Þá þarf ég víst að endurnýja það, taka nýja mynd og annað skemmtilegt. Ágætt reyndar að losna við þessa mynd af mér frá því ég var svona 9 eða 10 ára gamall.

Uhh, allt efnið sem ég var kominn með í fyrradag er farið úr kollinum, en það verður þá bara að hafa það.

Og já að lokum;

Til hamingju með afmælið Ingi Steinn Gunnarsson


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 21:46:22 / Tony

Eurovision

Gott kvöld gott fólk, hvað segiði, eru ekki allir í stuði? Nei ég er bara að tjékka soundið skomm...

Jæja, það sem er á vörum flestra þessa stundina er eflaust söngvakeppni evrópskra sjónvarpstöðva, eða Eurovision eins og flestir þekkja hana.
Ég horfði nú á þessa undankeppni, ekki með miklar væntingar, en ég stóð þó í þeirri trú að Evrópa myndi nú hleypa löndum eins og Rússlandi, Belgíu og Finnlandi áfram. Ekki hleyptu þeir Belgunum áfram, tja reyndar ekki fr. Nótt heldur sem kom mér svosem ekkert á óvart. Herra "hæ, ég er ógeðslega massaður og sýni það því með því að vera í svona rosalega fleginni skyrtu og þröngum leðurbuxum og jakka, look at me LOOK AT ME" bætti keppnina heldur ekkert (annar kynnirinn)

Það sem ég skil hinsvegar ekki, er að ár eftir ár, gerir þessi keppni svo mikið í buxurnar að það er ekki fyndið. Að hleypa einhverjum eins og Tyrkjum, Armenar og Litháen svo fátt eitt sé nefnt sýnir bara hversu þroskaheft þessi álfa sem við lifum í er! *

Ég fór aðeins að pæla í þessu meira, og fann upp þessa snilldar hugmynd. Afhverju ekki að gera Eurovision tölvuleik: "Eurovision: Battle of alliances" ?
Hvert hlutverk manns væri í þessum leik er óvitað, en mér datt í hug að maður gæti valið sér að vera einhver manneskja frá einhverju ákveðnu landi, eins og segjum t.d. Frakklandi og annaðhvort syngja eða gefa atkvæði í keppninni, og ef maður ætti að gefa atkvæði myndi maður bara geta gefið Mónakó 12 stig ... þið sjáið hvert ég er að fara.

Ef maður væri Dani væri maður neyddur til að gefa Norðmönnum eða Svíum 12 stig, ef maður væri Tyrki myndi maður gefa Rússum 12 stig, Króati myndi maður gefa kannski Albaníu 12 stig ... pælið bara í skemmtuninni sem einn tölvuleikur gæti veitt manni!

Þessi keppni er bara eitt stórt djók, ef maður vill hlægja þá er þetta alveg tilvalið, og líka afsökun fyrir að vera fullur ;)

Jæja, hvað meira er svosem hægt að tuða um Mongóvision (úúúúú æm só klevah'!)? Held að þetta sé gott í bili.

Fóstbræður hafa aftur á móti gert ófá lögin, og þau flest öll góð og ætla ég að byrja að deila þeim hér á þessari síðu. Stel líka textunum af henni Birnu :haha:, þér er alveg sama og þú veist það.

(* Vil samt taka það fram að ég hef ekkert á móti Tyrkjum, Armenum og Litháen, lögin þeirra voru bara hræðileg)


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 23:12:55 / Tony

Áfengi af hinu góða?

Snorri

Ég elska áfengi.

Ekki vegna þess að ég drekki neitt (mikið) af því, en það er bara svo skemmtilegt. Þegar maður fer út að skemmta sér, og einhverjir í kringum mann eru að drekka fá þeir skyndilega þá löngun til að segja frá sínum helstu leyndarmálum, gera sig að fífli svo maður geti hlegið og annað skemmtilegt.
Áfengi fær líka marga til að opna sig, lenti t.d. í því um helgina að það var ósjaldan sagt við mig: "Anton, þú ert frábær gaur. ÉG ELSKA ÞIG!", og eitthvað í þeim dúr, en hver hefur ekki gaman af ástarjátningum, jafnvel þó að áfengið sjái að mestu um talið?

Reyndar myndi ég nú frekar vilja heyra þetta frá edrú manneskju, en ég er líka bara ég.

Ég nefndi sumarið í seinustu færslu, veðrið er svo sannarlega búið að leika við okkur Akureyringana, dýrka það. Fengum ekki almennilegt sumar í fyrra vegna einhvers jökuls hérna í firðinum, helvítis jöklar!

Hmm hvað annað hef ég að segja?
Heyrðu já, ég fékk vinnu í Kristjáns Bakarí í sumar. Það verður fjör. Öllum hjartanlega velkomið að koma í heimsókn, og hver veit nema að ég bjóði viðkomandi upp á kókó-mjólk og kleinu?

Arrrgh, ég þoli ekki að blogga bara til að blogga. En ég var víst búinn að lofa bloggi svo ég verð að standa við orð mín.

Blogga líklega fljótt aftur, og síðan munu (,vonandi,) nýir hlutir bætast við síðuna hérna á næstu dögum.

Þangað til næst - góðar stundir - Anton.

Snorri


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 14:25:12 / Tony

Sumarið er komið!

Já, þið heyrðuð rétt. Sumarið er komið með allri sinni dýrð. Það var mjög skemmtilegt að labba heim úr skólanum í seinustu viku í allt að 18 stiga hita, og ekki einu sinni kominn maí!

Sumarið er árstíð sem allir elska, sérstaklega ungu börnin, því þá geta þau stokkið út og skemmt sér í ýmsum nútímalegum leikjum, eins og einni krónu, kasta'bolt'yfir hús ... möguleikarnir eru ÓENDANLEGIR!

En þegar maður verður eldri og vitrari (eins og ég er í dag) þá þroskast maður úr þessari vitleysu og gerir eitthvað nytsamlegra. Eins og sitja á rassgatinu fyrir framan tölvuna, lesa sjónvarpsdagskrána (aðal-hobbí Akureyringa víst), eða ferð upp í banka með alla skiptimyntina þína og færð seðla í staðinn (en þetta á reyndar eiginlega bara um eldri borgara, eins og hann afa minn).

En hvað segir sumar meira en sumar-vinna?
Ef það er eitthvað sem gerir það, þá vil ég ekki heyra af því! Maður liggur núna sveittur að fylla umsóknareyðublöð á hina og þessa staði, en það er samt eitt sem situr fast í huga mínum.
Mun það starf sem ég tek mér fyrir hendur í sumar jafnast á við vinnuna í fyrrasumar?, sundlaugargarðinn sjálfan. Aaaahh, þegar ég hugsa til baka þá rifjast ýmsir skemmtilegir hlutir upp fyrir mér. Eins og:


1. Fyrsti dagurinn, þegar við vorum inn í skúr að spila olsen olsen og fórum svo heim eftir klukkutíma vegna veðurs.
2. Reita arfa ásamt Snorra, ohh, það stóðst okkur enginn snúninginn í þeirri grein! hev fön in Íngland Snorrie.(vona að hann skilji mig)
3. Ná í bílana úr afgreiðslunni og setja þá á hina miklu rafmagnsbílabraut.
4. Þegar ég ætlaði að gefa öndunum sem við geymdum í búri þarna að borða, en endaði með því að gefa þeim öllum "frelsi" og hlupu þær útum allan garðinn, en við náðum þeim að lokum. Mikið hlegið þennan dag (reyndar gerðist þetta tvisvar, ef ekki þrisvar!)
5. Svo var líka gaman að henda öllum litlu krökkunum úr garðinum ef þeir voru að bögga mig. Ég og vald förum vel saman.
6. Hinn mikli hljómsveitarleikur ... ef ég segi t.d. Radiohead, þá verður næsti að segja einhverja hljómsveit/tónlistarmann sem byrjar á D .... Eins og Dr. Feelgood.

.... Reyndar, þegar ég hugsa útí það, þá var sundlaugargarðurinn ekki þessi paradís á jörð sem ég hafði alltaf haldið.

Well, það var orðið frekar einmanalegt hérna á síðunni, þess vegna er ég að blogga núna jú.

Lag bloggsins, og jafnvel sumarsins:..... Love Gúrú - Sumar


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 21:58:45 / Tony

Disco boys - St. Peter

 I said, Hey, hey, hey St. Peter
I'’ve got a tale to tell
I'’ve just been down in New York town
It really feels like hell

Hey, hey, hey St. Peter
I'’ve got a tale to tell
I'’ve just been down in New York town
It really feels like hell

I said, Hey, hey, hey, hey, hey St. Peter
Hey, hey, hey, hey, hey St. Peter

It really feels like hell
It really feels like hell

Hey, St. Peter
Before you ring your bell
Just been down in New York town
Done my time in hell
Done my time in hell

I said, Hey, hey, hey, hey, hey St. Peter
Hey, hey, hey, hey, hey St. Peter

It really feels like hell
It really feels like hell
 
Goð!

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 16:54:32 / Tony

bömmer dagsins...

.... er að það er enginn bömmer. ÞAÐ ERU PÁSKAR!

Jájá, tvö páskaegg fékk ég, bæði gerð hjá félaga mínum honum Nóa. Ég hef samt ekki lyst á öðru þeirra, eitt er meira en nóg.

Málshættirnir:
"betra er brjóstvit en bókvit" og:
"ekki er riðið þótt hnakkurinn sé kominn á bak"

hahaha, betra er brjóstvit en bókvit? Er þá verið að segja okkur að menntun skiptir ekki máli, að svo lengi sem maður sé með (stór) brjóst þá sé maður á grænni grein? 8|

Og sá seinni þýðir í aðalatriðum bara "öryggið á oddinn"... leiðinlegu málshættir, geta aldrei gert neitt rétt.

Jæja, skiptir svosem voða litlu. Vildi bara koma þessu á framfæri, blogga aftur fyrr en ykkur grunar!


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 21:33:35 / Tony

Bömmer dagsins.

... er að ég var að komast að því að ég hefði getað farið í GB ferðina eftir allt, laus sæti í rútunni og síðan fengu vitleysingarnir auka miða eða w.e.

Held að þetta verði reglulegur liður á síðunni, nóg af bömmerum þessa dagana.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2